Tímalína máls
Í samráðsferli
Í vinnslu
Samráði lokið
Í vinnslu
Álitsfrestur er liðinn. Álit voru birt jafnóðum og þau bárust.
Boð um þátttöku (7)
Skjöl til samráðs
Tengiliður
Svava Svanborg Steinarsdóttir
svava.s.steinarsdottir@reykjavik.is
Samráð 9
Álitsfrestur: 29.5.2024
Fjöldi álita: 2
Skoðun
Umhverfis- og skipulagssvið
Betri loftgæði í Reykjavík
Málsefni
Leitað er eftir framsæknum og hugmyndaríkum tillögum sem lagt geta lóð á vogaskálarnar þegar kemur að bættum loftgæðum í Reykjavík.
Nánari upplýsingar
Stýrihópur um loftgæði var skipaður af borgarráði Reykjavíkurborgar, en einnig hafa heilbrigðisfulltrúar frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur verið honum til ráðgjafar og aðstoðar. Hlutverk starfshópsins er að marka langtímastefnu um loftgæði og uppfæra aðgerða- og viðbragðsáætlun Reykjavíkurborgar um loftgæði í borginni. Í viðleitni til að tryggja lýðræðisþátttöku borgarbúa um málefnið, er málefnið sett inn á samráðsgátt Reykjavíkurborgar svo hugmyndir íbúa geti einnig skilað sér í endanlegri uppfærslu stýrihópsins á stefnu um loftgæði.